Nú er loksins farið að óma á öldum ljósvakans Við elskum þig nú samt. Þó er ekkert lát á vinsældum Milljarðamæringsins. Það er í 3 sæti á netlistanum sem að er listi vefsins Tonlist.is. Það er líka í 3. sæti á Bylgjunni og 5. sæti á Léttbylgjunni. Þetta er sennilega besta gengi Millanna í langan tíma.
En svo eigum við mikið inni því að nýja platan okkar sem kemur til landsins innan fárra daga er sneisafull af sjóðheitum sumar og haustsmellum.
Kalli
Hinn árlegi sparidansleikur Milljónamæringanna verður haldin laugardaginn 11. ágúst á Broadway. Að þessu sinni er þetta einnig afmælisball og útgáfutónleikar því að Millarnir eru 15 ára á árinu, hafa starfað síðan 1992. Margt verður um dýrðir á dansleiknum, margir ástsælustu söngvarar þjóðarinnar munu koma fram enda hafa margir komið við sögu hljómsveitarinnar á þessum tíma. Stefán Hilmarsson, Raggi Bjarna, Bjarni Ara og Bogomil Font verða á sínum stað. Einnig verður Laddi sérstakur heiðursgestur en hann ásamt Millunum á einn af sumarsmellum ársins, Milljarðamæringinn.
Hljómplatan "Alltaf að græða" sem inniheldur 14 glæný lög verður nýlent og boðin til sölu á ballinu á suðrænu karnivalverði. Allir fyrrnefndir söngvarar syngja á plötunni. Miðasala hefst kl 13 á Broadway en aðgangseyrir er 2000 kr. Húsið opnar kl. 22.00. Snyrtilegur klæðnaður er æskilegur enda Sparidansleikur.
Nýja Millalagið sem Stefán Hilmarsson syngur fór í útvarp í byrjun viku. Það var spilað einu sinni á mánudag. Síðan þá hef ég ekki haft neinar spurnir af útvarpsspilun. Ég var að vona að þetta yrði heitasta lagið um verslunarmannahelgina. Kannski líkaði Óla Palla ekki lagið. Best að heyra í honum eftir helgi.
Hvað varðar Bylgjuna og þær systur þá er Milljarðamæringurinn enn í a-spilun hjá þeim þannig að þeir vilja ekki spila Stebba ennþá. Skilst mér. Vona að það fari að breytast. Endilega látið mig vita hingað á bloggið ef þí heyrið þetta í útvarpinu. Það myndi gleðja mig mjög.
En gleðilega helgi verslunarmenn. (eru það ekki allir menn? )Ég versla, þess vegna er ég...
...alltaf blankur.
Kalli
Áhugaverð er þessi frétt um að lundavarp hafi misfarist í ár. Fram kemur að Marínó pípulagningameistari í eyjum hafi notað skólpmyndavél sína til að taka myndir í lundaholunum. Þetta hafi hann stundað í nokkurn tíma. HALLÓ!!! Er skrítið að varpið mistakist? Einhver illa daunandi myndavél ofan í hreiðrunum. Ég gæti sennilega ekki frjóvgað mín egg undir skólpmyndavél. Skamm, Marínó!
Kalli
Millarnir sendu út fréttatilkynningu á mánudag þess efnis að Við elskum þig nú samt væri komið út. Fréttablaðið birti hana í dag en birtu því miður mynd með henni sem ég hafði sett hér á Millabloggið. Þar hafði ég í bríeríi sett haus Stefáns Hilmarssonar á Helga leigubílstjóra sem er kylfusveinn á golfmyndunum okkar. Mér hafði þótt það nokkuð sniðug lausn því ekki var til mynd þar sem Stebbi er með okkur í golfi. En ég hafði ekki séð fyrir mér að myndin yrði birt í fjölmiðlum enda hafði ég ekki leyfi Stefáns, Helga né ljósmyndarans til að eiga við myndina. En ég hefði getað sagt mér það sjálfur að það sem fer á netið er orðið opinbert. Svo að ég harma þetta atvik og hef tekið myndina af netinu. Reyndar sendi ég  mynd með fréttatilkynningunni og er hún hér til hliðar. Ég veit ekkert hvað Birgir er að gera á myndinni.
Kalli
Jæja, ég lofaði að leka þessu á netið í dag. Þetta fer í útvarp eftir helgi.
Hressandi lag og skemmtilegur texti. Lagið samdi ég (Kalli) en Stefán orti vísuna alveg einn.  Lagið er sumsé í spilaranum austanmegin, ég held að lagið sé syðst. (ok, hægramegin og neðst)
Við elskum þig nú samt
Í sandinum í Víkinni
voru áður stunduð böð
og annað veifið sleiktu menn þar sól.
Þar sátu piltar skýlum á
og virtu fyrir sér
víf í næfurþunnum sumarkjól.
Það er ótrúlegt, en satt,
því varla er sála lengur þar.
Nú þarf á miðri skerplunni
að klæða af sér él
og raka saman höglum túnum á.
Heldur lítil eru þau í veru hér um slóð
gróðurhúsaáhrifin – og sjá
það er komið annað haust
áður en sumarið kemst að.
Ó, við elskum þig nú samt.
Jafnvel þó við fáum alltof lítinn sólarskammt.
Veðurfarið gerir oss í geði oft svo gramt.
En þegar rennur dagur
heiðríkur og fagur
gleymast allar raunir og við lofum þetta land.
Já, þetta land.
Það getur verið erfitt oft
að sætta sig við það
að golan er og verður alltaf köld
hér í norðurhöfum. En við eigum samastað
og flestir eiga yfirhafnafjöld
þegar frostið bítur og regnið dynur
frá morgni fram á kvöld.
Já, við elskum þig nú samt.
Jafnvel þó við fáum alltof lítinn sólarskammt.
Veðurfarið gerir oss í geði oft svo gramt.
En þegar rennur dagur
heiðríkur og fagur
gleymast allar raunir og við lofum þetta land.
Loks þá rennur dagur
bjartur bæði og fagur
gleymast dökkir dagar og við lofum þetta land.
Já, þetta land.
Vort ísa land.
Já, það er ekki hægt að keppa í listum. Og hvað eru Millarnir annað en listamenn. Okkur gæti ekki staðið meira sama um veraldleg gæði, fé og frama, konur eða vín. En þó er alltaf gaman af prjáli á tyllidögum. Í dag var birtur Lagalistinn sem ég hef áður komið inn á  í pistlum nýlegum. Þar erum við í 2. sæti. Við höfum hins vegar fallið niður í 5. sæti á Bylgjunni. En erum komnir í 1. sæti Léttbylgjunnar!!! Þannig að enn gengur allt í haginn. Í 3. sæti á tónlist.is . Þetta er alveg ágæt byrjun á samstarfi Ladda og Millanna. Nú er bara að sjá hvernig SH og Millarnir gera sig. Spennó.
Kalli
Milljarðamæringurinn með Ladda og Millunum hefur enn hækkað sig á Lagalistanum og er hann kominn í 2. sæti á næsta lista sem er birtur á fimmtudaginn. En Lagalistinn er sá listi sem tekur til flestra lista útvarpstöðva og fjölmiðla.  En þar sem plata okkar, Alltaf að græða, er sneisafull af smellum er varla seinna vænna en að gefa út næsta lag. Það munum við gera á mánudaginn kemur.
Lagið heitir Við elskum þig nú samt og er sungið af Stebba Hilmars. Það inniheldur einnig gítarleik sem er heldur sjaldgæft þegar Millarnir eiga í hlut. Ómar Guðjóns á heiðurinn af gítarleiknum sem er afar skemmtilegur. Gítarleikurinn sko. Jú, Ómar líka.
Ég mun leka laginu inn á þennan vef á föstudaginn..
Kalli
Það er velþekkt aðferð erlendis að nýta sér klippur úr gömlum lögum til að gera ný popplög. Mest í rappi, hip-hoppi og RnB. En raunar í öllum tegundum popps.
Þetta hefur líka verið gert hér á landi en það er þó ekki jafn algengt.
Hér er slóð inn á franska síðu þar sem má hlusta á brot úr lögum sem innihalda "sömpl" og einnig á upprunalegu lögin. Mjög skemmtilegt að fletta í gegnum þetta, ýmislegt sem kemur á óvart.
Kalli
Nú er platan okkar farin út og fer að dælast út úr vélunum á færiböndum í næstu viku. Umslagið er tilbúið og loksins er búið að lenda nafni á hana. Hún heitir Alltaf að græða. Og hljómsveitin mun gegna nafninu Millarnir í framtíðinni. Ýmsar ástæður svosem. Það þykir ekkert sérstakt að vera milljónamæringur í dag. Betra að vera milljarðamæringur. Milli nær yfir hvoru tveggja. Svo eru menn ekki á einu máli um hvernig á að stafsetja milljón. Ég meina miljón. Skilurðu?  Svo er það stutt og laggott. Millarnir - Alltaf að græða.
Umslagið hannaði fyrir okkur Kalli Örvars. Ljósmyndirnar tók Gúndi. Mér finnst þetta töff.
Kalli
Lagið okkar Ladda er í 4. sæti á lagalistanum sem er listi sem er settur saman úr "playlistum" útvarpsstöðvanna og tónlist.is. Milljarðamæringurinn er líka í 1. sæti á Bylgjunni og 3. sæti á tónlist.is . Semsagt ansi gott. Eitt af lögum sumarsins. Við fögnum því.
Kalli
Út er komin smáskífan Milljarðamæringurinn með Ladda og Milljónamæringunum. Það er nú þegar farið að hljóma í útvörpum og er lag vikunnar á Tónlist.is vikuna 5 - 11. júlí. Annars má heyra þetta stuðlag sem er eftir Ladda sjálfan hér í tónspilaranum. Millarnir fluttu þetta live í Kastljósinu um daginn og má skoða það HÉR.
Sérstök endurhjóðblöndun hefur farið fram á laginu fyrir fólk fætt eftir 1987 og má hlýða á það einnig hér á síðunni. Kunnum við Milljónamæringar Dj Batiqueman þakkir fyrir það.
Kalli
Já, það er rétt. Tölvuleikurinn Escape Paris snýst um að hjálpa Paris Hilton að flýja úr klefanum sínum. Algjör snilld. Og ber þess engin merki að hafa verið búinn til í flýti. http://onlinegames24.blogspot.com/2007/05/escape-paris.html
Kalli
Hvernig? Jú, með því að annað hvort leyfa fólki að kjósa um einhverja titla, td: Handbók piparsveinsins, Alltaf nóg að gera, iMambo, Sumar nætur... Eða með því að nota nöfnin sem Britney Spears stingur upp á:
1. Omg is Like Lindsay Lohan Like Okay Like
2. What if the Joke is on You
3. Down boy
4. Integrity
5. Dignity
eða á íslensku:
1. Almtgr, er sko Birgitta þarna sko..
2. Hvað ef þau hlæja síðast
3. Sittu kallinn
4.Sjálfum sér samkvæmir
5. Reisn
Reisn er kannski of tvírætt..minnir á  hugmynd sem að kom upp að nafngift: The lost art of being a man sem var þýtt sem Endurreisn karlmennskunnar.
Svo er þetta fjórða plata Millanna, hvað með M IV ?
Spurning
Kalli
Bara dálítið latir. Platan heldur áfram. Flestir söngvararnir búnir að syngja. Stebbi og Raggi eftir. Þeir klára í viku komanda. En ég held að ég sé kominn með nafnið á plötuna. Við erum búnir að vera að spá í eitthvað karlmannlegt í anda sjötta áratugarins: The lost art of being a man. En það er illþýðanlegt. Svo vel sé. Hefur ekki sama glans á íslensku. Svo í gærkvöldi var ég að lesa skemmtilega bók eftir Umberto Eco, Foucault's Pendulum, sem ég les auðvitað á ítölsku (ekki). Þar segir ein persónan þar sem hún hellir sér yfir næstu kynslóð á eftir: You brainwashed them with Zen and the art of motorcycle maintenance. Og ég hugsaði hmmm, flott nafn á plötu: Zen and the art of motorcycle maintenance. En kannski ekki flott í íslenskri þýðingu. Og þá mundi ég eftir sjónvarpsþáttum sem að ég og vinur minn ætluðum að gera í gamla daga. Handbók piparsveinsins. Þar ætluðum við að taka á ýmsum nauðsynlegum hlutum sem piparsveinar þyrftu að hafa á hreinu. Praktískum og minna praktískum. Við vorum kannski ekki vel til þess fallnir á sautjánda ári. En nafnið hefur mér alltaf þótt gott. Handbók piparsveinsins. Og ég held að textar nýju plötunar falli allir glæsilega undir þann titil:
1. Milljarðamæringurinn : Maður sem syngur um peninga eins og hann eigi þá. Draumur piparsveinsins.
2. Búllubúbbar: Klámbúllutexti. Auðveld tenging.
3. Hver veit, hver veit, hver veit?: Ofursvalur bítlatexti um mann með gras í gönguskóm.
4. Ekki kalla það ást: Gaur sem syngur um líkamlega löngun en hafnar ástinni.
5. Göngum yfir brúna: Piparsveinar taka líka þátt í náttúruvakningunni.
6. Alltaf nóg að gera: Almennar pælingar um athafnamanninn í okkur öllum. Og piparsveinum.
7. Sumar nætur: Um feiminn piparsvein. En hann reynir.
8. Skömm og skandalar: Strákur reynir að finna stúlku við hæfi. En kemur í ljós að hann á margar laumusystur.
9.  Nóttin verður okkar: En einn vonbiðillinn. Síðasti piparsveinninn ?
10.  Amanda: Um ástfanginn piparsvein og stúlku sem særir hann(þú myrðir mig á ný..án handa).
11. Tók til fóta: Um strák sem lendir í undarlegum ástarævintýrum með huldumey..og huldusveini
12. Viltu mambó væna? Instrumental, 60's töffarapiparsveinabragur. Gæti tekið á sig nafn plötunnar.
13. Live till I die: Er á meðan er. Lifðu eins og það sé enginn morgundagur. Kafli 13 í H.P.
14. Ethel: Stebbi ekki búinn með textann. En hann smellpassar eflaust inn.
Semsagt: Milljónamæringarnir: Handbók piparsveinsins. Nú er bara að spyrja strákana.
Kalli