Ég man þegar ég var lítill fór ég að sjá Kóngulóarmanninn í Stjörnubíói. Mér er í fersku minni hvernig hann pósaði uppi á þökunum á meðan hann leit í kringum sig áður en hann hljóp á næsta stað. Og mig rámar í perralegan wah-wah gítar. En ekkert mikið meira. Eru þessar myndir ófáanlegar í dag? Eða var bara ein gerð? Mig grunar að þessar myndir hefðu ótvírætt skemmtigildi í dag. Ekki ósvipað gömlu þáttunum um Leðurblökumanninn og hina jákvæðu hjálparhellu hans, Þröst.
Kalli
Köngulóarmaðurinn enn á toppnum vestanhafs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 798
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Myndin sem sýnd var í Stjörnubíó var ein af þremur sjónvarpsmyndum um Spider-Man. Aðalhlutverkið lék Nicholas Hammond, en nánari upplýsingar um fyrstu myndina geturðu fundið hér á IMDB.
Myndirnar um Spider-Man voru eftirtaldar:
The Amazing Spider-Man (1977) (TV)
Spider-Man Strikes Back (1978) (TV)
Spider-Man: The Dragon's Challenge (1979) (TV)
Og svo voru framleiddir 13 þættir, en Stan Lee var mjög á móti því hvernig farið var með sköpun hans í þessum þáttum. Samt er ég viss um að þetta hljóti að hafa ákveðið skemmtigildi fyrir algjöra bíónörda. :)
"The Amazing Spider-Man" (13 episodes)... aka Spiderman
Ljóst er að ég get ekki verið stuttorður um þessa hluti. Ætli ég búi ekki bara til eins og eina bloggfærslu fyrst þetta er orðið svona mikið efni.
Hrannar Baldursson, 13.5.2007 kl. 22:31
Takk fyrir þetta Hrannar. Nú er að finna þetta á DVD. Ég hlakka til að lesa blogfærsluna um þetta.
Kalli
Millablog, 13.5.2007 kl. 22:51
Greinin komin inn :)
Hrannar Baldursson, 13.5.2007 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.